Fotbolti.net
05.11.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Raphinha framlengir við Barcelona

Raphinha framlengir við Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Raphinha hefur framlengt samning sinn við Barcelona til ársins 2030. Raphinha hefur verið stórkostlegur á þessu tímabili en hann hefur skorað 19 mörk í 13 leikjum.

Hann gekk til liðs við félagið frá Leeds árið 2022 og hefur spilað 190 leikii og skorað 94 mörk. Hann hefur unnið spænsku deildiina þrisvar og spænska bikarinn einu sinni.
„Ég vil gera mitt besta fyrir félagið og eiga stað í hjörtum stuðningsmanna. Ég gat ekki ímyndað mér hvar ég er núna á fyrstu tveimur árunum. Ég vissi hvað ég gæti og hvað ég gæti gefið félaginu. Ég hafði trú á minni vinnu og ákveðninni að ná í góð úrslit," sagði Raphinha.

Raphinha missti af tveimur leikjum vegna meiðsla en hefur skorað fimm mörk í fimm leikjum eftir meiðslin.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.