Fotbolti.net
05.12.20 - 18:55
Victor Pálsson
Ítalski boltinn

Ítalía: Dramatískur sigur Juventus í borgarslag

Ítalía: Dramatískur sigur Juventus í borgarslag
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalíumeistarar Juventus unnu dramatískan sigur á Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í dag í sannkölluðum borgarslag á Allianz vellinum.
Juventus hefur verið að misstíga sig töluvert til þessa og var búið að gera fimm jafntefli eftir fyrstu níu umferðirnar.

Útlitið var ekki alltaf gott í leik kvöldsins en Nicolas N'Koulou skoraði fyrsta mark leiksins og kom gestunum í Torino yfir.

Staðan var 0-1 alveg þar til á 77. mínútu er Bandaríkjamaðurinn Westom McKennie kom boltanum í netið með skalla og jafnaði metin fyrir Juve.

Reynsluboltinn Leonardo Bonucci reyndist svo hetja heimaliðsins í leiknum en hann skoraði einnig með skalla á 89. mínútu til að tryggja Andrea Pirlo og hans mönnum sigur.

Juventus lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum en er enn þremur stigum á eftir toppliði AC Milan sem á leik inni.

Fyrr í dag áttust þá við lið Spezia og Lazio og lauk þeim leik með 2-1 sigri Lazio. Þeir Ciro Immobile og Sergej Milinkovic-Savic skoruðu mörk liðsins.

Juventus 2 - 1 Torino
0-1 Nicolas N'Koulou ('9)
1-1 Westom McKennie('77)
2-1 Leonardo Bonucci('89)

Spezia 1 - 2 Lazio
0-1 Ciro Immobile('15)
0-2 Sergej Milinkovic-Savic('33)
1-2 M'Bala Nzola('64)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.