06.01.21 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Pirlo þarf sigur í stórleik gegn Milan

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það fer heil umferð fram í ítalska boltanum í dag og verða fimm leikir sýndir beint á Stöð 2 Sport 2 og aukastöðvum.
Veislan hefst fyrir hádegi þegar Cagliari tekur á móti Benevento áður en Inter freistar þess að taka toppsætið af nágrönnum sínum í AC Milan. Inter heimsækir lærisveina Claudio Ranieri í Sampdoria.
Lazio mætir Fiorentina og gæti Andri Fannar Baldursson komið við sögu er Bologna mætir Udinese í beinni útsendingu. Roma heimsækir þá Crotone á meðan Atalanta tekur á móti Parma.
Síðar í dag á Napoli heimaleik gegn nýliðum Spezia áður en AC Milan og Juventus eigast við í stórleik í kvöld.
Ítalíumeistarar Juve þurfa sigur eftir lélega byrjun á tímabilinu en þeir eru tíu stigum eftir andstæðingum sínum í Milan, en í það minnsta með leik til góða.
Það er orðið nokkuð heitt undir Andrea Pirlo sem tók við félaginu í sumar.
Leikir dagsins:
11:30 Cagliari - Benevento (Stöð 2 Sport 2)
14:00 Atalanta - Parma
14:00 Bologna - Udinese (Stöð 2 Sport 4)
14:00 Crotone - Roma
14:00 Lazio - Fiorentina
14:00 Sampdoria - Inter (Stöð 2 Sport 2)
14:00 Sassuolo - Genoa
14:00 Torino - Verona
17:00 Napoli - Spezia (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Milan - Juventus (Stöð 2 Sport 3)