Selfoss hefur krækt í mjög efnilegan framherja frá Hetti/Hugin, hann Þorlák Breka Baxter.
Þorlákur Breki, sem er á 16. aldursári, spilaði 15 leiki fyrir Hött/Hugin í 3. deild karla síðasta sumar og skoraði í þeim fjögur mörk. Hann spilaði einnig tvo leiki í Mjólkurbikarnum.
Þorlákur á tvo leiki að baki fyrir U15 landslið Íslands og þykir hann mjög efnilegur. Hann var valinn besti ungi leikmaðurinn í 3. deild síðasta sumar og komst hann einnig á varamannabekinn í liði ársins.
Selfoss hafnaði í öðru sæti 2. deildar á síðustu leiktíð og spilar í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Hér að neðan má sjá frétt Austurfrétt um Þorlák Breka sem var skrifuð á síðasta ári.
Athugasemdir