Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 06. febrúar 2021 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Man Utd og Everton: Pogba inn - Gylfi út
Pogba byrjar hjá Man Utd.
Pogba byrjar hjá Man Utd.
Mynd: Getty Images
Manchester United gerir eina breytingu frá 9-0 sigrinum á Southampton fyrir leik sinn við Everton klukkan 20:00 í kvöld.

Paul Pogba kemur inn í byrjunarliðið fyrir Fred. Anthony Martial er áfram á varamannabekknum þrátt fyrir góða innkomu gegn Southampton.

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í byrjunarliði Everton, hann byrjar á bekknum. Tom Davies og Andre Gomes byrja á miðsvæðinu fyrir Everton. Gylfi skoraði í vikunni gegn Leeds en byrjar ekki í kvöld.

Man Utd getur jafnað Man City á toppnum með sigri, en City á leik til góða á United fyrir leikinn í kvöld. Everton er í sjöunda sæti.

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Wan-Bissaka, Lindelöf, Maguire, Shaw, McTominay, Pogba, Bruno Fernandes, Greenwood, Cavani, Rashford.
(Varamenn: Henderson, Telles, Williams, Matic, Van De Beek, Martial, Fred, James, Tuanzebe)

Byrjunarlið Everton: Olsen, Holgate, Godfrey, Keane, Digne, Doucoure, Gomes, Davies, Richarlison, James, Calvert-Lewin.
(Varamenn: Virginia, Nkounkou, Coleman, Delph, Bernard, Iwobi, Mina, Sigurdsson, King)
Athugasemdir
banner
banner
banner