Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 06. apríl 2021 14:00
Victor Pálsson
Hodgson: Zaha veit hvað hann vill gera
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, hefur gefið í skyn að Wilfried Zaha sé búinn að ákveða hvað hann ætli að gera fyrir næsta tímabil.

Zaha er stærsta stjarna Palace og er reglulega orðaður við stærri lið bæði á Englandi og erlendis.

Zaha hefur verið töluvert meiddur á þessu tímabili en lék með Palace í 1-1 jafntefli gegn Everton í gær.

„Hann hefur misst af fleiri leikjum vegna meiðsla en á síðustu árum sem er áfall fyrir okkur en við vonumst til að hann nái næstu leikjunum," sagði Hodgson.

„Hann virðist vera viss um hvað hann vilji gera og hvar hann vilji vera. Við vonumst til að geta notið hans krafta í næstu leikjum."

„Þegar tímabilinu lýkur þá sjáum við hvað gerist."
Athugasemdir
banner