Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. apríl 2021 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Munum gera allt sem við getum til að kaupa hann"
Lingard hefur verið frábær fyrir West Ham.
Lingard hefur verið frábær fyrir West Ham.
Mynd: Getty Images
West Ham ætlar að gera allt til að reyna að kaupa Jesse Lingard frá Manchester United í sumar.

Lingard hefur verið stórkostlegur fyrir West Ham á láni frá United og meðal annars blandað sér í baráttuna um að komast í enska landsliðshópinn fyrir EM.

„Við munum gera allt sem við getum til að kaupa hann. Hann hefur verið framúrskarandi fyrir okkur," sagði heimildarmaður innan West Ham við Sky Sports.

Hinn 28 ára gamli Lingard fór til Hamranna í janúar eftir að hafa verið úti í kuldanum hjá United. Hann hefur nú skorað sex mörk í átta leikjum með West Ham og átt þátt í fjórum til viðbótar.

Það er spurning hvað gerist hjá honum á næsta tímabili; hvort hann fær annað tækifæri hjá Man Utd eða heldur áfram hjá West Ham.

Athugasemdir
banner
banner
banner