Fotbolti.net
06.04.21 - 10:13
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Þriðji leikmaður Juventus kominn í einangrun

Federico Bernardeschi.

Federico Bernardeschi.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski landsliðsmaðurinn Federico Bernardeschi, leikmaður Juventus, hefur greinst með Covid-19 veiruna. Hann er þriðji leikmaður ítalska stórliðsins sem greinist með Covid eftir landsleikjagluggann.

Bernardeschi er kominn í einangrun líkt og þeir Merih Demiral og Leonardo Bonucci sem áður höfðu greinst með veiruna.
Ítölsku landsliðsmennirnir Alessandro Florenzi, Marco Verratti, Salvatore Sirigu, Vincenzo Grifo og Alessio Crago smituðust allir af Covid-19 og núna Bernardeschi.

Juventus hefur átt erfitt tímabil og er sem stendur í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar. Hætta er á að liðið muni missa af Meistaradeildarsæti.

Liðið leikur gegn Napoli á morgun og segja ítalskir fjölmiðlar að staða Andrea Pirlo sé í hættu ef sá leikur endar illa.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.