Fotbolti.net
06.05.22 - 20:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Jó: Ég verð að heilsa Orra hérna

Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH.

Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, mætti í viðtal eftir 2-2 jaftefli gegn Val í Bestu deildinni í kvöld.

„Ég er alveg þokkalega sáttur með leikinn, en auðvitað hefði ég viljað vinna. Mér fannst við vera ofan lungann af leiknum og við áttum að vinna hann."
Fyrri hálfleikurinn var góður hjá FH-ingum. „Ég var bara ánægður með frammistöðu okkar... ég verð að heilsa Orra (Sigurði Ómarssyni) hérna," sagði Óli og stoppaði viðtalið í stutta stund til að faðma gamlan lærisvein sem er núna að ganga í gegnum erfið meiðsli.

Svo hélt viðtalið áfram. „Frammistaðan var fín. Við fengum færi til að komast í 2-0. Það er oft mjög góð staða í fótbolta. Valsliðið er gott lið og þú getur ekkert slakað á gegn þeim."

Davíð Snær Jóhannsson gekk formlega til liðs við FH í gær og hann kom beint inn í byrjunarliðið.

„Ég treysti honum 100 prósent í að spila þennan leik og hann gerði það mjög vel."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.