Fotbolti.net
06.05.22 - 13:39
Elvar Geir Magnússon

Staðfestir að De Bruyne hafi verið tekinn af velli af taktískum ástæðum

Kevin De Bruyne í leiknum gegn Real Madrid.

Kevin De Bruyne í leiknum gegn Real Madrid.

Canon

Mynd: EPA

Kevin De Bruyne var ekki að glíma við nein meiðsli þegar Pep Guardiola ákvað að taka hann af velli í undanúrslitaleiknum gegn Real Madrid. Guardiola staðfesti á fréttamannafundi í dag að ákvörðunin hafi verið af taktískum ástæðum.
Þegar rúmlega stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma þá tók Guardiola belgíska leikmanninn af velli og sett Ilkay Gundogan inn.

„Kevin De Bruyne er leikfær. Hann er fínn. Það voru taktískar ástæður fyrir því að hann var tekinn af velli," sagði Guardiola.

Manchester City fékk á sig tvö mörk í lok leiksins og hann fór í framlengingu þar sem Real Madrid skoraði sigurmarkið í einvíginu úr vítaspyrnu.

Guardiola var spurður að því hvort þessi leikmannahópur geti unnið Meistaradeildina.

„Það er spurning sem ég get ekki svarað. Fótbolti er óútreiknanlegur. Í mínum huga var það mikið afrek að komast aftur í undanúrslit Meistaradeildarinnar og keppa gegn svona sterkum andstæðingum sem hafa fest sig í sessi," sagði Guardiola.

Manchester City er með eins stigs forystu í ensku úrvalsdeildinni en liðið mætir Newcastle á sunnudaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.