Linda Líf Boama hefur komið gífurlega sterk inn í byrjunarliðið hjá Kristianstad í efstu deild sænska boltans.
Kristianstad krækti í Lindu Líf úr röðum Víkings R. í nóvember í fyrra og er Linda markahæsti leikmaður sænsku deildarinnar með fjögur mörk og tvær stoðsendingar eftir fjórar umferðir.
Kristianstad er með 9 stig eftir fjórar fyrstu umferðir deildartímabilsins eftir óvænt tap gegn Brommapojkarna í síðustu umferð.
„Ég skrifaði undir þriggja ára samning og bjóst við að það gæti tekið mig tíma að komast í byrjunarliðið hérna, ég var í raun ekki búin að setja mér neitt sérstakt markmið," sagði Linda í viðtali við Fotbollskanalen, en hún leikur undir stjórn Nik Chamberlain sem þjálfaði í Bestu deildinni á Íslandi áður en hann var ráðinn til Kristianstad.
„Fótboltinn hérna er líkamlegri en því sem ég er vön á Íslandi en þetta er augljóslega góð byrjun fyrir mig, ég er ekki að kvarta. Ég er ennþá að þróast sem fótboltakona og líður eins og ég eigi mjög mikið inni."
Linda, sem verður 25 ára í ágúst, er með tvo landsleiki að baki fyrir A-landsliðið.
„Ég hef alltaf vitað að sænska deildin er ein sú erfiðasta í heimi. Þetta er stórt en nauðsynlegt skref fyrir mig ef ég ætla að halda áfram að bæta minn leik.
„Ég elska að búa í Svíþjóð en ég sakna auðvitað fjölskyldunnar heima á Íslandi. Ég er að reyna að læra sænsku, ég fer tvisvar sinnum í kvöldskólann á viku. Tungumálið er mjög svipað íslensku og ég get vonandi svarað á sænsku í næsta viðtali."
Mikið hefur verið rætt og ritað um möguleg félagaskipti fyrir Lindu í sænskum fjölmiðlum en hún hefur ekki tekið eftir því.
„Þetta er allt á sænsku þannig ég veit ekkert hvað er búið að segja eða skrifa um mig. Eina sem ég er að hugsa um að er að gera vel fyrir Kristianstad. Fólk er mjög vingjarnlegt hérna og það finnst mér vera mikilvægt, það er gott karma."
Linda skoraði 8 mörk í 20 leikjum í Bestu deildinni í fyrra.



