Fotbolti.net
06.06.22 - 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Íslands: Andri Lucas byrjar - Albert áfram á bekknum

<b>Byrjunarlið Íslands:</b> Andri Lucas byrjar - Albert áfram á bekknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland mætir Albaníu á Laugardalsvelli klukkan 18:45 í kvöld. Um annan leik Íslands í Þjóðadeildinni er að ræða. Ísland er með eitt stig eftir jafntefli gegn Ísrael en Albanía er að spila sinn fyrsta leik.

Byrjunarliðið hefur verið opinberað og eru þrjár breytingar á liðinu frá síðasta leik. Davíð Kristján Ólafsson kemur inn fyrir Brynjar Inga Bjarnason, Andri Lucas Guðjohnsen kemur inn fyrir bróður sinn Svein Aron og Ísak Bergmann Jóhannesson kemur inn fyrir liðsfélaga sinn hjá FCK, Hákon Arnar Haraldsson. Albert Guðmundsson er á bekknum líkt og í síðasta leik.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Albanía
Byrjunarlið Íslands:
1. Rúnar Alex Rúnarsson (m)
2. Alfons Sampsted
6. Ísak Bergmann Jóhannesson
7. Arnór Sigurðsson
8. Birkir Bjarnason
11. Jón Dagur Þorsteinsson
14. Daníel Leó Grétarsson
19. Davíð Kristján Ólafsson
20. Þórir Jóhann Helgason
22. Andri Lucas Guðjohnsen
23. Hörður Björgvin Magnússon

Albert er á bekknum

Albert er á bekknum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.