Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 06. september 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sergio Rico keyptur til PSG (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að festa kaup á spænska markverðinum Sergio Rico.

Rico kom til PSG í fyrra að láni frá Sevilla og spilaði tíu leiki fyrir félagið sem ákvað að festa kaup á honum fyrir 6 milljónir evra.

Hinn 27 ára gamli Rico er keyptur sem varaskeifa fyrir Keylor Navas. Rico á einn landsleik að baki fyrir Spán en hann spilaði 170 leiki fyrir Sevilla.

Þeir sem fylgjast með enska boltanum hafa séð Rico spila en hann var að láni hjá Fulham þegar liðið féll úr úrvalsdeildinni í fyrra.


Athugasemdir
banner
banner
banner