Fotbolti.net
06.09.21 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Orri Hjaltalín hættur með Þór (Staðfest)

Orri Hjaltalín hættur með Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Lengjudeildin
Orri Freyr Hjaltalín er hættur sem þjálfari Þórs eftir slakt tímabil í Lengjudeildinni í sumar.
Orri skrifaði undir þriggja ára samning í nóvember í fyrra en hefur ákveðið að segja upp störfum. Aðstoðarmenn hans Sveinn Elías Jónsson og Jón Stefán Jónsson munu stýra Þórsliðinu út tímabilið.

Þór hefur átt mikið vonbrigðasumar og er í þriðja neðsta sæti Lengjudeildarinnar, með 20 stig eftir 20 umferðir.

Þeim hefur ekki tekist að skora í síðustu sjö deildarleikjum sínum en Akureyringar eru þó nánast komnir úr fallhættu.

Uppfært: Yfirlýsing Þórs:

Orri Hjaltalín þjálfari meistaraflokks karla hefur ákveðið að stíga til hliðar sem þjálfari liðsins og munu Jón Stefán Jónsson og Sveinn Elías Jónsson klára tímabilið, þá tvo leiki sem eftir eru.

Þór þakkar Orra fyrir sín störf síðastliðið árið og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.