Argentínski snillingurinn Lionel Messi skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu í 4-0 sigri Barcelona á Sevilla í kvöld en markið var heldur laglegt.
Luis Suarez, Arturo Vidal og Ousmane Dembele gerðu fyrstu þrjú mörk Börsunga áður en röðin var komin að Messi.
Barcelona fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og var Messi ekkert að flækja málin. Hann smurði boltanum yfir vegginn og í hægra hornið.
Hægt er að sjá aukaspyrnuna hér fyrir neðan.
WHAT A FREE KICK FROM MESSI pic.twitter.com/9L99vGOjt9
— Follow @FutbolStan (@BarcaGoals__) October 6, 2019
Athugasemdir