Manchester United vann Omonia frá Kýpur í Evrópudeildinni í kvöld en leikurinn endaði 3-2.
Cristiano Ronaldo var í byrjunarliðinu en hann hefur ekki verið í náðinni hjá Erik ten Hag stjóra liðsins. Staðan var 1-0 í hálfleik en Anthony Martial og Marcus Rashford komu inn á í síðari, Rashford strax í hálfleik.
Hann sá til þess að United náði forystunni með því að skora og leggja upp á Martial. Hann skoraði síðan þriðja markið eftir undirbúning Ronaldo.
Rashford er mjög ánægður með samstarfið með Martial og spurning hvort við munum sjá meira af því og meira af Ronaldo á bekknum.
„Hann er geggjaður leikmaður og hefur verið það lengi, þegar hann er ánægður og á fullu er hann ótrúlegur leikmaður. Ég hef alltaf notið þess að spila með honum. það var gaman í dag og við ætlum okkur að gera meira af þessu," sagði Rashford eftir leik kvöldsins.