Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. október 2022 20:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu atvikið: Ronaldo klikkaði á dauðafæri í kvöld
Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo hefur ekki verið í náðinni hjá Erik ten Hag en þessi 37 ára gamli portúgali hefur aðeins byrjað einn leik í deildinni en hefur byrjað alla þrjá í Evrópudeildinni.


Hann var í byrjunarliðinu í kvöld í 3-2 sigri Onomia frá Kýpur en hann lagði upp þriðja markið á Marcus Rashford.

Hann hefði sjálfur getað skorað þriðja markið stuttu áður en hann fékk boltann inn á teignum en setti boltann í stöngina með markið galopið fyrir framan sig.

Ronaldo er með eitt mark og eina stoðsendingu í Evrópudeildinni en hefur ekki komið að neinu marki í deildinni í þeim sex leikjum sem hann hefur tekið þátt í.

Atvikið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner