fös 06.okt 2023 16:57 Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir |
|
Lið ársins og önnur verðlaun í Lengjudeild kvenna 2023
Lengjudeild kvenna kláraðist á dögunum. Víkingur vann deildina nokkuð þægilega en Fylkir fer upp í Bestu deildina með Víkingum. HK og Grótta rétt misstu af því að komast upp. KR og Augnablik falla úr deildinni
Hér fyrir neðan má sjá lið ársins að mati Fótbolta.net og þar fyrir neðan er hægt að sjá hver er þjálfari ársins, hver er besti leikmaður tímabilsins og hver var efnilegust að mati síðunnar.
Tinna Brá Magnúsdóttir - Fylkir
Emma Steinsen Jónsdóttir - Víkingur R.
Erna Guðrún Magnúsdóttir - Víkingur R.
Eva Rut Ásþórsdóttir - Fylkir
Sigdís Eva Bárðardóttir - Víkingur R.
Brookelynn Entz - HK
Bergdís Sveinsdóttir - Víkingur R.
Selma Dögg Björgvinsdóttir - Víkingur R.
Hannah Abraham - Grótta
Guðrún Karítas Sigurðardóttir - Fylkir
Ariela Lewis - Grótta
Varamenn:
Katla Sveinbjörnsdóttir (m) - Víkingur R.
Kristín Anítudóttir McMillan (HK)
Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Grótta)
Natalia Colleen Cooke (FHL)
Jada Lenise Colbert (Grindavík)
Breukelen Lachelle Woodard (Fram)
Hildur Karítas Gunnarsdóttir (Afturelding)
Nadía Atladóttir (Víkingur R.)
Þjálfari ársins: John Andrews - Víkingur R.
Er bara einn af þjálfurum ársins á Íslandi í öllum íþróttum. Hann vinnur alla bikara sem í boði eru með Víkingum á þessu tímabili. Þær urðu fyrsta liðið úr næst efstu deild til að vinna bikarkeppnina og unnu svo Lengjudeildina þægilega. Ótrúlegt tímabil hjá Víkingum. Gunnar Magnús Jónsson úr Fylki og Pétur Rögnvaldsson úr Gróttu gerðu einnig sterkt tilkall og þá má hrósa þjálfarateymi Fram fyrir að hafa bjargað liðinu svona örugglega frá falli.
Leikmaður ársins Erna Guðrún Magnúsdóttir - Víkingur R.
Erfitt val í ljósi þess að það voru margir leikmenn frábærir í Víkingsliðinu sem var besta lið deildarinnar. Svo voru aðrir leikmenn eins og Brookelyn Entz úr HK og Hanna Abraham úr Gróttu sem einnig komu til greina. Erna Guðrún átti frábært tímabil með Víkingi en hún reyndist algjör leiðtogi eftir komu sína frá FH. Hún sýndi gríðarlegan stöðugleika í gegnum allt tímabilið og er vel að þessu komin, var skipstjórinn í þessu liði. Það var gríðarlega mikilvægt fyrir Víking að fá Ernu Guðrúnu og Selmu Dögg Björgvinsdóttur fyrir tímabilið.
Efnilegust Sigdís Eva Bárðardóttir - Víkingur R.
Ótrúlega efnilegur leikmaður sem hefur verið að springa algjörlega út í sumar. Var frábær í öflugu Víkingsliði og fékk stórt hlutverk þrátt fyrir að vera bara fædd árið 2006. Hún skoraði 16 mörk í deild og bikar. Var einnig frábær með U19 landsliðinu á Evrópumótinu í sumar.
Athugasemdir