Fotbolti.net
06.11.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England um helgina - Meistaraslagur á Etihad

England um helgina - Meistaraslagur á Etihad
Canon

Mynd: Getty Images

Síðasta umferð enska úrvalsdeildartímabilið fyrir landsleikjahlé fer fram um helgina og byrjar veislan strax í kvöld þegar Brighton mætir Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley áður en Southampton og Newcastle eigast við.
Morgundagurinn byrjar á áhugaverðum slag þar sem Everton tekur á móti Manchester United. Everton er búið að tapa tveimur leikjum í röð og er þremur stigum eftir toppliði Liverpool, en sex stigum fyrir ofan Rauðu djöflana sem hafa farið hikstandi af stað. Gylfi Þór Sigurðsson gæti verið í byrjunarliði Everton.

Leeds United heimsækir svo Crystal Palace og Chelsea mætir Sheffield United áður en West Ham og Fulham eigast við í síðasta leik laugardagsins.

Evrópudeildarliðin Tottenham, Leicester og Arsenal mæta til leiks á sunnudaginn en stórleikur helgarinnar er vafalítið viðureign Manchester City og Liverpool. Þar taka Englandsmeistararnir 2019 á móti meisturunum frá síðustu leiktíð í risaslag.

Leicester tekur á móti Wolves og Arsenal fær Aston Villa í heimsókn.

Leikirnir verða sýndir beint á sportstöð Símans.

Föstudagur:
17:30 Brighton - Burnley
20:00 Southampton - Newcastle

Laugardagur:
12:30 Everton - Man Utd
15:00 Crystal Palace - Leeds
17:30 Chelsea - Sheffield Utd
20:00 West Ham - Fulham

Sunnudagur:
12:00 West Brom - Tottenham
14:00 Leicester - Wolves
16:30 Man City - Liverpool
19:15 Arsenal - Aston Villa
England um helgina - Meistaraslagur á Etihad
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.