Fotbolti.net
06.11.26 - 12:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alltaf planið að koma aftur - „Þetta lið þarf á honum að halda"

Mættur aftur í Smárann.

Mættur aftur í Smárann.

Canon

Mynd: Breiðablik

Jökull Elísabetarson var í dag tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks og snýr aftur í Smárann eftir tæp fjögur ár í Garðabæ. Jökull er fyrrum leikmaður Breiðabliks, varð Íslandsmeistari liðsins 2010 og þjálfaði svo Augnablik, venslalið Breiðabliks, áður en hann hélt í Stjörnuna.

Jökull ræddi um nýja starfið við Fótbolta.net.
Alltaf planið að koma aftur í Breiðablik
„Það er rosalega góð tilfinning að vera orðinn þjálfari Breiðabliks. Mér finnst ég svolítið vera kominn heim. Ég er búinn að fá helvíti góðar móttökur, er spenntur að hitta fólkið og byrja með leikmannahópnum," segir Jökull.

Jökull á góðar minningar úr Smáranum.

„Mér leið rosalega vel í Breiðabliki, átti rosalega góða tíma, bæði sem leikmaður og sem þjálfari - var auðvitað mest með Augnablik, en það var sterk tenging á milli. Ég þekki mikið af fólkinu, mikið af sama fólki ennþá hjá félaginu. Það var alltaf planið að koma aftur og verða á einhverjum tímapunkti þjálfari Breiðabliks."

Alltaf pressa og vill ná stemningunni upp
Á eftir fyrsta fundi, og eftir hann, fékkstu góða tilfinningu, fannst þér þetta strax líklegt?

„Já, mér fannst það. Mér fannst við ná vel saman, fannst hugmyndirnar vera á svipuðum stað og í takti. Ég er mjög spenntur fyrir samstarfinu vegna þess. Ég er að koma á eftir frábærum þjálfurum, Óli náði góðum árangri, Dóri, Óskar og Gústi þar á undan líka."

„Ég er búinn að fylgjast vel með, fór mikið á völlinn hjá þeim í sumar. Mér fannst vera lítil stemning og það er eitthvað sem allir þurfa að vinna í; að byggja upp stemninguna aftur."

„Það verður alltaf pressa vegna þess að það er búinn að vera mikill árangur. Stuðningsmenn vilja sjá orkumikinn og skemmtilegan fótbolta. Ég er mjög spenntur."


Leikmenn sjá mest um að kveikja eldinn
Ertu að sjá fyrir að þú og liðið getið búið til stemningu með leiftrandi og skemmtilegum fótbolta?

„Það byrjar alltaf þar, það er helst í höndum leikmanna að kveikja í stuðningsmönnum með því sem þeir gera inni á vellinum, þeir kveikja mestan eldinn hjá fólkinu í stúkunni. Það þarf að fylgja, úrslit og kraftur og orka inni á vellinum. Stuðningsmenn þurfa að finna að það sé verið að gefa allt í verkefnið. Þetta byrjar inni á velinum og smitast upp í stúkuna."

Rólegur að eðlisfari
Varðandi ferlið, það er nokkuð síðan þú varst fyrst orðaður við Breiðablik og þú ert tilkynntur nýr þjálfari í dag. Var eitthvað stress í þér að mögulega myndi þetta ekki gerast?

„Ég er frekar rólegur að eðlisfari, það leið smá tími og ég vissi að Breiðablik væri að vanda sig við að vinna þessa vinnu vel. Þeir voru opnir með það að þeir ætluðu að passa að gera hlutina vel og gera þetta rétt. Þeir voru mjög heiðarlegir með að þeir ætluðu að vinna vel í þágu félagsins. Það komu einhverjir dagar þar sem ég heyrði ekki neitt, en ég var alveg rólegur. Ég trúði á að þetta myndi gerast þegar tímapunkturinn væri réttur, ef það væri núna þá væri það núna, annars seinna. Það var ekkert stress."

Krefjandi og spennandi verkefni
Hvað langar þig að gera með liðið, hvaða markmið setur þú þér?

„Ég er ekki kominn á þann stað að setja markmið, en Breiðablik hefur verið á þeim stað í íslenskum fótbolta að það verður ósjálfrátt krafa á árangur í öllum keppnum."

„Ég hugsa til leikmannahópsins og það sem ég vil sjá úti á vellinum. Við munum keyra grimmt í vetur og menn fá aðeins að þjást og svona."

„Breiðablik stendur líka fyrir öflugt barna- og unglingastarf. Það skiptir máli að það sé leið í gegn, upp í meistaraflokk, fyrir öfluga leikmenn sem eru tilbúnir að gera það sem þarf."

„Það að ná árangri og ná að koma ungum leikmönnum í gegn hefur ekkert alltaf farið vel saman. Það er krefjandi og spennandi."


Hvernig leikstíl má búast við?
Við hverju mega stuðningsmenn búast, ertu að sjá fyrir þér að Breiðabliksliðið spili allt öðruvísi fótbolta en í sumar?

„Ég ætla ekki að kommenta of mikið á sumarið. Óli gerði vel, náði góðum árangri og spilaði á ungum leikmönnum og vann titil. Ég ætla ekki að bera saman það sem kemur við það sem var í sumar. Ég vil frekar tala um það sem ég vil sjá og svo þurfa aðrir að meta hvort það sé öðruvísi."

„Ég vil sjá bilaða orku, mikið flæði, agressífan leik bæði sóknar- og varnarlega. Ég mun gera þá kröfu á liðið að þetta verði topp pressu lið í deildinni en verði líka sterkt í að verjast í kringum eigið mark. Ég vil að liðið verði öflugt á boltann, frekt á boltann og það sé gengið út frá því að liðið sé dómínerandi úti á velli. Ég vil að það sé tilgangur í því sem gert er með boltann, það sé verið að skapa færi og það sé verið að ylja fólki í stúkunni og menn reyni að láta það standa upp inn á milli með góðri spilamennsku."


Hópurinn verður stækkaður
Hefur eitthvað verið rætt varðandi leikmannamál?

„Ekkert sem ég og við erum búin að negla. Það er alveg ljóst að það voru helvíti öflugir leikmenn að fara frá liðinu, reynslumiklir leikmenn sem hafa gefið liðinu mjög mikið," segir Jökull og á þar við þá Kristin Steindórsson og Kristin Jónsson.

„Eftir situr hópur sem er ekkert rosalega stór. Liðið er að fara í Evrópukeppni, að lágmarki fjóra leiki. Ég reikna með því að það verði leikjaálag, ætlum okkur langt í bikarnum svo það verður álag framan af líka. Það þarf klárlega að bæta við leikmönnum, styrkja og auka samkeppnina. Ég vil fá að sjá ungu leikmennina, kynnast þeim og sjá hverjir af þeim eru tilbúnir að láta að sér kveða og berjast um sæti í hópnum áður en við tökum endanlegar ákvarðanir um hverjir ættu að koma inn."

„Þetta lið þarf á honum að halda"
Þinn gamli liðsfélagi, Andri Rafn Yeoman, er með lausan samning. Hefur þú einhverja skoðun á hans framtíð?

„Ég vil sjá hann áfram, hann les það þá fyrst hér og fær svo símtalið frá mér, sem er bara fínt."

„Það er enginn vafi í mínum huga. Ég spilaði með Andra, veit hvaða mann og leikmann hann hefur að geyma. Þetta lið þarf á honum að halda."


Á eftir að spjalla við þá
Kristófer Ingi Kristinsson og Dagur Örn Fjeldsted eru líka með lausa samninga, ætlarðu að tala við þá?

„Ég veit að félagið hefur verið að vinna í þessum málum. Ég mun reyna spjalla við alla leikmenn áður en við byrjum, vil aðeins heyra hljóðið í mönnum og fara yfir framhaldið og á eftir að spjalla við þá."

Það hefur verið slúðrað um að Stefan Alexander Ljubicic gæti komið í Breiðablik. Er á döfinni að rætt verður við hann?

„Það hefur ekki komið til tals, ég veit ekki hver staðan hans er á þessum tímapunkti. Það á eftir að koma í ljós."

„Ef Kristófer verður áfram þá eru tveir frábærir senterar í liðinu. Dolli (Þorleifur Úlfarsson) á eitthvað inni, það eru mörk í honum. Þessi mál eiga eftir að klárast og eftir að koma í ljós."


Óráðið hvernig teymið mun líta út
Jón Guðni Fjóluson er hættur og Haraldur Björnsson fór í Val, en Emil Pálsson væntanlega áfram. Hvernig lítur teymið út?

„Það er allt óráðið, þetta er svo nýklárað að ég hef ekki farið í samræður við neinn. Ég hef auðvitað hugsað um þetta og pælt í þessu, en ekki tekið neina ákvörðun."

Guðmundur Kristjánsson, uppalinn Bliki, hefur verið orðaður við Breiðablik. Ætlar þú að heyra í þínum gamla lærisvein?

„Hann er með samning hjá Stjörnunni, nýkominn í nýtt starf þar. Ég á ekki von á því að hann sé á lausu."

Leir í höndum leikstjórans
Að lokum, kynningarmyndbandið í Kópavogskirkju sem sjá má hér að neðan. Hvernig kom það til?

„Eins og þú getur rétt ímyndað þér á ég ekki hugmyndina að þessu myndbandi," segi Jökull á léttu nótunum. „Þetta er eitt helsta tákn Kópavogs, held að menn hafi séð einhverja tengingu þar. Ég sagðist vera leir í höndum þeirra sem voru á myndavélinni og gerði bara eins og mér var sagt. Ég er alls ekki trúaður, trúi á eðlisfræði, sem er kannski það skrítna í þessu, en ég var bara til í allt," bætti þjálfarinn við.


Jökull varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2010.

Jökull varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2010.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Jökull og Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks.

Jökull og Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gerði góða hluti með Augnablik.

Gerði góða hluti með Augnablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

 Þetta lið þarf á honum að halda.

Þetta lið þarf á honum að halda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar sem var undir væntingum.

Breiðablik endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar sem var undir væntingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistarar 2026.

Bikarmeistarar 2026.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vill að leikmenn kveiki í stúkunni.

Vill að leikmenn kveiki í stúkunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn vilja sjá orkumikinn og skemmtilegan fótbolta

Stuðningsmenn vilja sjá orkumikinn og skemmtilegan fótbolta

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vil sjá bilaða orku, mikið flæði, agressífan leik bæði sóknar- og varnarlega.

Ég vil sjá bilaða orku, mikið flæði, agressífan leik bæði sóknar- og varnarlega.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.