Fotbolti.net
06.11.26 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson

Almar Máni snýr heim í Fjölni (Staðfest)

Almar Máni snýr heim í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

Almar Máni Þórisson er kominn aftur heim í Fjölni eftir tvö ár með Þrótti í Vogum.
Almar Máni er 22 ára gamall og var markahæsti leikmaður Vogamanna í 2. deildinni í sumar, með 6 mörk í 22 leikjum. Hann var auk þess valinn besti leikmaður liðsins að mati stuðningsmanna.

Fjölnir endaði sjö stigum fyrir ofan Þrótt og verður áhugavert að fylgjast með Almari á heimaslóðum, eftir að hafa alist upp í Grafarvoginum.

„Það er frábær tilfinning að vera kominn heim í Fjölni. Ég er alinn upp í Grafarvoginum og það þýðir mikið fyrir mig að klæðast aftur gulu og bláu. Tíminn hjá Þrótti var góður og ég kem hingað fullur tilhlökkunar og tilbúinn að leggja mitt af mörkum. Ég vil skora mörk og hjálpa Fjölni að ná árangri,“ sagði Almar við undirskriftina og er Gunnar Már Guðmundsson þjálfari meistaraflokks himinlifandi.

„Við bjóðum Almar Mána hjartanlega velkominn heim og hlökkum til að sjá hann aftur í gulu og bláu!" segir í tilkynningu frá Fjölni.


Almar Máni snýr heim í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

2. deild karla

#LiðLmunStig
1Haukar22+2347
2Selfoss22+1945
3Kári22+2742
4Dalvík/Reynir22031
5Víkingur Ó.22-831
6Fjölnir22+330
7KFA22+629
8Kormákur/Hvöt22+427
9Magni22-1925
10Þróttur V.22-923
11KFG22-2022
12Hvíti riddarinn22-2617
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.