06.11.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
De Winter hafnaði belgíska landsliðinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Koni De Winter hafnaði landsliðskalli Mark van Bommel þjálfara Belgíu fyrir verkefnin tvö í komandi glugga.
De Winter verður því ekki með Belgum í landsleikjahlénu en hann er 24 ára gamall og samningsbundinn AC Milan næstu árin.
De Winter á 8 landsleiki að baki fyrir Belgíu en kom ekki við sögu með Belgíu á HM eða í síðasta landsleikjahléi, þrátt fyrir að vera valinn í hópinn.
„Koni De Winter hafnaði kallinu út af því að honum leið óþægilega með að hafa hvorki spilað á HM né í síðasta landsleikjahlé. Þetta snýst ekki bara um að hann hafi verið skilinn eftir utan hóps í síðasta leik," sagði Van Bommel.
„Sem þjálfari þá verð ég að samþykkja þetta, en þessi ákvörðun hans mun hafa einhverjar afleiðingar fyrir framtíðina hans í landsliðinu."
Josué Kongolo, fæddur 2006, var kallaður upp í landsliðshópinn í staðinn. Jorne Spileers og Matte Smets komu einnig til greina, en voru ekki valdir.
Það hefur líka spilað þátt í ákvörðun De Winter að hann var að eignast dóttur fyrir þremur dögum.
Belgía, sem er með 6 stig eftir 4 umferðir í Þjóðadeildinni, heimsækir Tyrkland á fimmtudag og tekur svo á móti Ítalíu á sunnudaginn.

All set for the final camp of the year. ????
— Belgian Red Devils (@BelRedDevils) November 6, 2026
#SelectedByPwC https://t.co/5xMZe200CQ

Mynd: EPA