Fotbolti.net
06.11.26 - 10:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jökull tekinn við Breiðabliki (Staðfest)

Jökull tekinn við Breiðabliki (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

Jökull I. Elísabetarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki.

Hann tekur við starfinu eftir að Ólafur Ingi Skúlason var látinn fara í síðasta mánuði. Jökull kemur til Breiðabliks eftir að hafa starfað hjá Stjörnunni undanfarin ár en hann var látinn fara frá félaginu í júní. Jökull kom Stjörnunni í Evrópu tímabilin 2023 og 2025.

Jökull þekkir vel til í Kópavogi, hann var hluti af fyrsta Íslandsmeistaraliði Breiðabliks, lék 116 leiki fyrir Blika á árunum 2010-2014, og starfaði svo seinna meir sem þjálfari venslaliðsins Augnabliks.
Úr tilkynningu Breiðabliks
Knattspyrnudeild Breiðabliks er afar ánægð með að fá Jökul til starfa. Með ráðningu hans verður haldið áfram að byggja á góðu starfi undanfarinna ára en karlalið félagsins hefur unnið þrjá stóra titla á síðustu fimm árum. Auk þess hefur liðið í tvígang tekið þátt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu, en Blikaliðið mun hefja leik í undankeppni Evrópudeildarinnar um mitt næsta sumar. Auk þess mun 2. flokkur félagsins taka þátt í Evrópukeppni á næsta ári, í kjölfar þess að liðið varð Íslandsmeistari í síðasta mánuði.

„Ég er stoltur og þakklátur að fá tækifæri til að koma til baka og þjálfa Breiðablik. Ég geri mér grein fyrir því að kröfur félagsins og stuðningsmanna eru miklar og ég ætlast til mikils af mér og liðinu. Ég vona að leikmenn hvíli sig vel í fríinu, þar sem við munum taka vel á því þegar þeir mæta til baka. Það eru spennandi tímar hjá félaginu og ég hlakka til að byrja. Ég treysti því að stuðningsmenn séu til í að búa til alvöru stemmningu með liðinu," segir Jökull við undirskrift.

Byggt á þessum sterka grunni, með öflugan leikmannahóp, eitt besta uppeldisstarf á landinu og sífellt betri aðstöðu hefur Breiðablik heilbrigðar væntingar um komandi tímabil. Áfram verður byggt að grunngildum Breiðabliks og leggja jöfnum höndum áherslu á tækifæri fyrir unga leikmenn og að spila árangursríkan og skemmtilegan fótbolta. Við erum þess fullviss að Jökull er rétti maðurinn til að leiða þessi næstu skref.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.