Fotbolti.net
07.01.20 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Mikilvægasti mánuður í stjóratíð Solskjær?

Ole Gunnar Solskjær.

Ole Gunnar Solskjær.

Canon

Mynd: Getty Images

Janúar gæti reynst mikilvægasti mánuður í stjóratíð Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United. Liðið verður í eldlínunni í þremur keppnum.

United þarf að spila sex leiki á 23 dögum og jafnvel leik til viðbótar ef liðið vinnur Wolves í endurteknum bikarleik.

Solskjær vill ná titli á sínu fyrsta heila tímabili við stjórnvölinn og deildabikarinn verður hans fyrsta tækifæri til þess. Í kvöld leikur liðið fyrri undanúrslitaleik sinn gegn erkifjendunum í Manchester City.

Reiknað er með því að Solskjær spili á sínu sterkasta mögulega liði til að reyna að komast á Wembley. Sergio Romero verður þó væntanlega í markinu en hann hefur sýnt að hann er meira en klár í að fylla skarð David de Gea. Þá er varnarmaðurinn Harry Maguire tæpur fyrir leikinn.
Næsta laugardag kemur svo leikur gegn Norwich, botnliði ensku úrvalsdeildarinnar. United verður að vinna þann leik en liðið er fimm stigum frá fjórða sætinu, Meistaradeildarsæti.

United stefnir á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni án þess að þurfa að vinna Evrópudeildina.

Eftir leikinn gegn Norwich kemur endurtekni bikarleikurinn gegn Wolves eftir markalaust jafntefli síðasta laugardag. Solskjær þarf að dreifa álaginu á hópnum því fimm dögum síðar er leikið gegn Liverpool á Anfield.

Ljóst er að Manchester United vill hindra Liverpool í að fara í gegnum tímabilið án þess að tapa leik. United er eina félagið sem hefur náð stigi gegn Liverpool í deildinni á þessu tímabili, liðin gerðu 1-1 jafntefli á Old Trafford í október.

Solskjær hefur gengið vel gegn stórliðum deildarinnar.

Þriðji úrvalsdeildarleikur United í janúar verður svo leikur gegn Burnley á Old Trafford þann 22. janúar. Ef United nær að vinna Wolves kemur bikarleikur nokkrum dögum eftir leikinn gegn Burnley, gegn Watford eða Tranmere.

Lokaleikur mánaðarins verður svo heimsókn til nágrannana í Manchester City 29. janúar, í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum deildabikarsins.

Það eru mikilvægir leikir framundan og ljóst að kallið eftir því að Ole Gunnar Solskjær verði látinn fara verður háværara ef illa fer.
Mikilvægasti mánuður í stjóratíð Solskjær?
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Ipswich Town1+13
7Leeds1+13
8Man City1+13
9Liverpool101
10Newcastle101
11Chelsea000
12Fulham000
13Bournemouth1-10
14Sunderland1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.