Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 07. janúar 2023 17:51
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikin: Klaufalegt brot Alaba og magnað klúður Danjuma
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Villarreal lagði Real Madrid að velli í fyrsta leik dagsins í spænsku deildinni þökk sé sigurmarki úr vítaspyrnu.


Gerard Moreno, sem lagði fyrra mark Villarreal upp, skoraði af vítapunktinum eftir að David Alaba hafði gerst brotlegur innan vítateigs.

Það væri ekki frásögu færandi ef Alaba hefði ekki verið einstaklega óheppinn og brotið hans ótrúlega klaufalegt. Austurríska stórstjarnan missti jafnvægið innan eigin vítateigs, um leið og sending fór af stað, og datt með höndina beint á boltann.

Óheppilegt fyrir Alaba en þetta reyndist sigurmark Villarreal í mikilvægum slag. Heimamenn hefðu getað bætt þriðja markinu við undir lokin en Arnaut Danjuma, fyrrum leikmaður Bournemouth, klúðraði fyrir opnu marki.

Danjuma, sem er gífurlega eftirsóttur eftir góða frammistöðu með Villarreal, gat gefið boltann til hliðar en ákvað þess í stað að senda boltann í markið af um 25 metra færi - en það mistókst hrapalega.

Sjáðu brot David Alaba innan vítateigs
Sjáðu magnað klúður Danjuma fyrir opnu marki
Sjáðu vítaspyrnnudóminn gegn Villarreal


Athugasemdir
banner
banner