Fotbolti.net
07.02.21 - 16:16
Victor Pálsson
Ítalski boltinn

Ítalía: Zlatan með tvö er Milan fór á toppinn

Ítalía: Zlatan með tvö er Milan fór á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan er komið aftur á toppinn í ítölsku úrvalsdeildinni eftir leik við botnlið Crotone á heimavelli í dag.
Crotone hefur verið versta lið Serie A á tímabilinu og er á botninum með 12 stig eftir 21 leik.

Zlatan Ibrahimovic heldur áfram að skora fyrir Milan og gerði tvennu í sannfærandi 4-0 sigri. Ante Rebic skoraði einnig tvö fyrir heimaliðið.

Milan er á toppnum með 49 stig en er aðeins tveimur stigum á undan erkifjendum sínum í Inter Milan sem er í öðru sæti.

Í hinum leikjum dagsins gerðu Benevento og Sampdoria 1-1 jafntefli og vann Udinese 2-0 heimasigur á Verona.

Hér má sjá markaskorarana í dag.

AC Milan 4 - 0 Crotone
1-0 Zlatan Ibrahimovic('30)
2-0 Zlatan Ibrahimovic('64)
3-0 Ante Rebic('69)
4-0 Ante Rebic('70)

Benevento 1 - 1 Sampdoria
1-0 Gianluca Caprari('55)
1-1 Balde Keita('80)

Udinese 2 - 0 Verona
1-0 Marco Silvestri('83, sjálfsmark)
2-0 Gerard Deulofeu('91)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.