Fotbolti.net
07.07.20 - 21:18
Ívan Guðjón Baldursson

England: Arsenal og Leicester skildu jöfn

England: Arsenal og Leicester skildu jöfn
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal 1 - 0 Leicester
1-0 Pierre-Emerick Aubameyang ('21)
Arsenal og Leicester mættust á tómum Emirates leikvangi í kvöld og úr varð hörkuleikur.

Pierre-Emerick Aubameyang skoraði eftir vel útfærða skyndisókn heimamanna. Bukayo Saka slapp þá í gegn og gaf boltann yfir teiginn til Aubameyang sem kláraði af stuttu færi.

Leikurinn var fjörugur og voru heimamenn sterkari það sem eftir lifði hálfleiks. Þeir komust nálægt því að bæta við marki en Kasper Schmeichel átti góðar vörslur.

Leicester var sterkari aðilinn eftir leikhlé og varð róðurinn þungur fyrir Arsenal eftir að Eddie Nketiah fékk beint rautt spjald fyrir háskaleik, þar sem hann fór með takkana í hnéð á James Justin.

Verðskuldað rautt spjald og skömmu síðar var Jamie Vardy búinn að jafna fyrir gestina eftir fyrirgjöf frá Demarai Gray.

Leicester stjórnaði ganga mála á lokakaflanum en náði ekki að stela sigrinum. Jafnteflið nokkuð sanngjarnt.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.