Fotbolti.net
07.11.24 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Evrópudeildin í dag - Grísku meistararnir á Old Trafford

Man Utd mætir PAOK

Man Utd mætir PAOK

Canon

Mynd: Getty Images

Fjórða umferð í deildarkeppni Evrópudeildarinnar klárast í kvöld.
Manchester United, sem hefur ekki enn unnið leik í keppninni á þessu tímabili, tekur á móti gríska meistaraliðinu PAOK klukkan 20:00.

Þetta verður fyrsti og eini leikurinn sem Ruud van Nistelrooy mun stýra United í Evrópukeppni áður en Ruben Amorim tekur við liðinu.

Tottenham Hotspur heimsækir Galatasaray. Tottenham hefur unnið alla leiki sína í keppninni.

Íslendingarnir í Elfsborg mæta Braga á meðan Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland fara til Rúmeníu og mæta Steaua.

Orri Steinn Óskarsson fer með Real Sociedad til Póllands að spila við Viktoria Plzen. Lúkas Petersson er þriðji markvörður hjá Hoffenheim í Þýskalandi, en liðið spilar við franska stórliðið Lyon.

Kristian Nökkvi Hlynsson er þá á mála hjá AJax sem spilar við Maccabi Tel Aviv. Kristian hefur verið á meiðslalistanum síðustu vikur og er óljóst hvenær hann snýr aftur á völlinn.

Leikur dagsins:
17:45 Bodo-Glimt - Qarabag
17:45 Eintracht Frankfurt - Slavia Prag
17:45 Elfsborg - Braga
17:45 Steaua - Midtjylland
17:45 Galatasaray - Tottenham
17:45 Ludogorets - Athletic
17:45 Nice - Twente
17:45 Olympiakos - Rangers
17:45 St. Gilloise - Roma
20:00 Ajax - Maccabi Tel Aviv
20:00 AZ - Fenerbahce
20:00 Dynamo K. - Ferencvaros
20:00 Lazio - Porto
20:00 Man Utd - PAOK
20:00 Rigas FS - Anderlecht
20:00 Hoffenheim - Lyon
20:00 Plzen - Real Sociedad
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.