Fotbolti.net
07.11.26 - 15:24
Brynjar Ingi Erluson

Farke: Ég kalla hann alltaf fiðrildið mitt

Daniel Farke

Daniel Farke

Canon

Mynd: EPA

Daniel Farke, stjóri Leeds United, segir að Jayden Bogle hafi ekki ætlað sér að meiða Mathys Tel í leik liðanna gegn Tottenham í dag.
Mjög umdeild ákvörðun í Leeds - „Þetta er klárt rautt!“
TENGT EFNI

Mjög umdeild ákvörðun í Leeds - „Þetta er klárt rautt!“

Bogle var heppinn að sleppa við rautt spjald í fyrri hálfleiknum eftir að hafa traðkað aftan á ökkla Mathys Tel.

VAR mat brotið sem gáleysislega tæklingu en taldi ekki ástæðu til að grípa inn í og gefa rautt spjald. Bogle slapp því alfarið við spjald, sem þótti nokkuð undarlegt þegar endursýningar af atvikinu voru skoðaðar.

Farke kom hins vegar leikmanni sínum til varnar eftir leikinn og sagði hann eins langt frá því að vera grófur leikmaður og hægt væri.

„Við vorum staðráðnir í að klára þennan leik og sýndum enga miskunn. Við sýndum frábæran baráttuanda, skuldbindingu og samheldni. Þetta var fyllilega verðskuldaður sigur.“

„Ég hef ekki séð atvikið aftur, en ég hef heyrt að það hafi verið nokkur umdeild atvik í leiknum. Möguleg hendi og annað slíkt, en ég veit að þetta var ekki viljaverk hjá Jayden Bogle. Þeir virtust einfaldlega rekast saman þarna.“

„Það er mjög óheppilegt að Mathys hafi meiðst og við óskum honum alls hins besta og vonum að hann nái sér sem fyrst.“

„Jayden Bogle er eins langt frá því að vera grófur leikmaður og hægt er. Í raun er hann líklega sá minnst grófasti í deildinni. Ég kalla hann alltaf fiðrildið mitt og get fullvissað ykkur um að þetta var ekki viljaverk. Hann ætlaði sér alls ekki að gera neitt slæmt,“
sagði Farke.
Jayden Bogle er fiðrildið hans Farke

Jayden Bogle er fiðrildið hans Farke

Canon

Mynd: Leeds

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.