07.11.26 - 13:01
Brynjar Ingi Erluson
Shaw mun líklega yfirgefa Man Utd eftir tímabilið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski varnarmaðurinn Luke Shaw mun að öllum líkindum yfirgefa Manchester United þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið en þetta segir Fabrizio Romano.
Shaw er 31 árs gamall og hefur verið á mála hjá United frá árinu 2014. Á þeim tíma hefur hann gengið í gegnum ýmislegt hjá félaginu, ekki síst vegna þrálátra meiðsla.
Hann hefur leikið 330 leiki fyrir United og skorað fimm mörk, en undanfarin ár hefur reynst erfitt að treysta á hann vegna meiðsla. Shaw er einmitt á meiðslalistanum um þessar mundir.
Samningur hans rennur út eftir tímabilið og bendir flest til þess að hann yfirgefi félagið þegar samningurinn rennur sitt skeið.
United er þegar farið að undirbúa mögulega brottför hans og hyggst skoða leikmannamarkaðinn næsta sumar.
Það er enda brýn þörf á að styrkja stöðu vinstri bakvarðar hjá United. Diogo Dalot hefur verið að leysa stöðuna, en sú tilraun hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig.