07.11.26 - 15:06
Brynjar Ingi Erluson
Þórdís Hrönn í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Breiðablik

Mynd: Breiðablik

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik eftir tveggja ára veru hjá Víkingi R., en félagið greindi frá félagaskiptunum í tilkynningu í dag.
Þórdís er 32 ára gömul og er nú að ganga til liðs við Breiðablik í þriðja sinn á ferlinum.
Hún kom fyrst til félagsins frá FH árið 2009 og lék með Blikum til ársbyrjunar 2014. Á þeim tíma varð hún meðal annars bikarmeistari með liðinu áður en hún hélt til Svíþjóðar og samdi við Älta IF.
Þórdís sneri síðar aftur til Íslands og gekk til liðs við Stjörnuna, þar sem hún varð Íslandsmeistari.
Árið 2021 gekk hún aftur í raðir Breiðabliks og lék sjö deildarleiki áður en hún hélt til Kýpur og samdi við Apollon. Þaðan lá leiðin aftur heim til Íslands þar sem hún gekk til liðs við Val.
Á tíma sínum hjá Val varð Þórdís tvívegis Íslandsmeistari, en á síðasta ári gekk hún til liðs við Víking. Liðið hafnaði í fimmta sæti deildarinnar það ár, en féll úr deildinni nú í haust.
Þórdís er komin aftur í Kópavoginn, en samningur hennar við félagið tekur gildi um áramótin.
Hún á að baki tvo A-landsleiki fyrir Ísland og hefur auk þess leikið 29 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Breiðablik varð á dögunum Íslandsmeistari þriðja árið í röð, en þetta var 21. Íslandsmeistaratitill félagsins.