Fotbolti.net
08.01.20 - 07:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski boltinn

Conte: Best að halda áfram að segja að Lukaku sé lélegur

Conte: Best að halda áfram að segja að Lukaku sé lélegur
Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte tók við stjórnartaumunum hjá Inter á Ítalíu í sumar. Í félagaskiptaglugganum tókst honum að krækja í Romelu Lukaku frá Manchester United.

Framherjinn stóri og stæðilegi hefur skorað og skorað fyrir Inter. Alls hefur Lukaku skorað 16 mörk í 23 leikjum í Seríu A og Meistaradeildinni fyrir Inter.
Lukaku fékk talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína hjá Manchester United og grínaðist Conte með gagnrýni í garð Lukaku í viðtali á dögunum.

„Lukaku er lélegur," sagði Conte.

„Það er best að halda áfram að segja að hann sé lélegur. Það hentar vel fyrir okkur," sagði Conte í gríntón við Sky Sport Italia.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.