Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 08. janúar 2022 12:07
Brynjar Ingi Erluson
Leik Víkings og Fylkis frestað til þriðjudags
Víkingur mætir Fylki á þriðjudag
Víkingur mætir Fylki á þriðjudag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Víkings R. og Fylkis í Reykjavíkurmóti karla fer ekki fram í dag en leiknum hefur verið frestað til þriðjudags.

Reykjavíkurmótið hefst í dag en leikur liðanna átti að fara fram klukkan 14:00 á Víkingsvelli.

Víkingur greinir frá því á Twitter að leikurinn fari ekki fram í dag og hefur verið frestað til þriðjudags og fer fram klukkan 19:00.

Eini leikurinn í Reykjavíkurmóti karla í dag er leikur Vals og Fjölnis en hann hófst klukkan 12:00 á Origo-vellinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner