Chelsea leggur aukna áherslu á að fá Mainoo - Milan vill Mitchell - Phillips gæti snúið aftur til Leeds
   lau 08. febrúar 2025 12:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu ótrúlegt mark Leyton gegn Man City
Leyton Orient er óvænt komið með forystuna gegn Man City í enska bikarnum en markið var af dýrari gerðinni.

Nico Gonzalez missti boltann á miðjunni og Jamie Donley var fljótur að hugsa og lét vaða. Stefan Ortega var illa staðsettur og náði ekki til boltans.

Boltinn fór í slána en fór svo þaðan í Ortega og í netið.

Donley er tvítugur framherji en hann er á láni hjá Leyton frá Tottenham. Hann hefur skorað fimm mörk í 29 leikjum fyrir Leyton á tímabilinu.

Sjáðu markið hér



Athugasemdir
banner
banner
banner