Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 08. maí 2026 22:25
Kári Snorrason
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það gerist ekki betra en þetta: Að skora mark í lokin eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik. Við misstum aldrei trú í hálfleik, við höfðum allir trú á að við værum að fara koma til baka,“ sagði Amin Cosic, leikmaður KR, eftir sigur liðsins á Stjörnunni í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  3 KR

Geggjað að vera í KR
Hversu sætt var að sjá Ástbjörn skora sigurmarkið?
„Þetta var geggjuð tilfinning. Vel spilað hjá Aroni á mig og ég tek hlaupið. Tengingin sem við erum búnir að búa til síðan ég kom er góð. Geggjað að sjá Ástbjörn skora, hann er búinn að vera sjóðheitur.“

Hversu gaman er að vera í KR núna?
„Það er geggjað að vera í KR. Geggjað að spila þessa leiki, nammi fyrir alla framherja að spila svona fótbolta.“

Tekið stór skref
Amin hefur byrjað tímabilið frábærlega og tekið stór skref fram á við frá því í fyrra. Hann var spurður um muninn frá síðasta tímabili.

„Ég reif mig í gang og byrjaði að fara meira í ræktina og hlustaði meira á hvað þjálfararnir vildu frá mér. Þegar ég kom hélt ég að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast. En þegar þetta kemur inn, spilar hundrað prósent varnarleik á æfingum og ferð í ræktina verðuru miklu betri leikmaður.

Undirbúningstímabilið er 6-7 mánuðir, þú hefur hellings tíma til að bæta þig. Ég held að ég sé búinn að sýna núna hvað ég get. Ég held að ég eigi þetta skilið, er búinn að leggja mikið á mig eins og liðið allt.“


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner