Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður U21 landsliðsins, var í byrjunarliðinu gegn Hvíta-Rússlandi í kvöld en þurfti að fara af velli snemma í seinni hálfleik þar sem hann fann fyrir verk í bringu sinni.
„Ísak Snær heldur um bringuna á sér, Ísak var bara labbandi og settist svo eftir að hafa fundið verk í brjósti," skrifaði Arnar Laufdal í textalýsingu frá leiknum.
„Ísak Snær heldur um bringuna á sér, Ísak var bara labbandi og settist svo eftir að hafa fundið verk í brjósti," skrifaði Arnar Laufdal í textalýsingu frá leiknum.
Ísak birti mynd á Twitter eftir leikinn í kvöld þar sem hann liggur í sjúkrarúmi. „Helvítis boltinn maður🏥" skrifaði Ísak við myndina.
Fréttaritari hafði samband við Ísak og spurði hann út í stöðu mála.
„Ég fékk verk í bringuna og var í blóðprufu. Það var einnig tekið hjartalínurit," sagði Ísak sem á eftir að fara í eitt próf í viðbót.
Hann sagði að niðurstöður úr prófunum hefðu komið vel út en hann væri enn með verki í bringunni.
Uppfært 22:20:
Ísak er farinn upp á hótel U21 árs liðsins og fer í frekari tékk á morgun til öryggis.
Helvítis boltinn maður🏥 pic.twitter.com/E4E5kA8Xua
— Ísak Snær Þorvaldson (@isaks10) June 8, 2022
Athugasemdir