Fotbolti.net
08.07.20 - 19:26
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Fyrrum leikmaður Vals byrjar á sigri með Bristol

Jamie Paterson skoraði fyrir Bristol City

Jamie Paterson skoraði fyrir Bristol City

Canon

Mynd: Getty Images

Dean Holden, bráðabirgðastjóri Bristol City, byrjar vel með liðið en City vann Hull City 2-1 í ensku B-deildinni í kvöld.
Bristol City rak Lee Johnson frá félaginu á dögunum en hann hafði þjálfað liðið í rúmlega fjögur ár. Gengi liðsins undanfarið hefur verið slakt en liðið náði þó í mikilvægan sigur í kvöld.

Holden var aðstoðarþjálfari hjá Bristol áður en Johnson var rekinn og tók hann því við keflinu út þessa leiktíð þegar Johnson var rekinn.

Það muna margir áhugamenn um íslenskan fótbolta eftir Holden en hann lék með Val árið 2001. Hann var þá á láni frá Bolton Wanderers.

Holden fer því þjálfaraferilinn vel af stað en Famara Diedhiou og Jamie Paterson sáu um að skora mörk heimamanna en Bristol er í tólfta sæti með 58 stig, sex stigum á eftir Cardiff sem er í umspilssæti.

Swansea vann þá 3-1 sigur á Birmingham. Lucas Jutkiewicz kom Swansea yfir á 5. mínútu áður en Rhian Brewster tvöfaldaði forystuna. Brewster er á láni frá Liverpool og hefur verið öflugur síðan deildin fór aftur af stað. Ben Cabango og Jay Fulton sáu um að skila þremur stigum til velska liðsins og 3-1 sigur staðreynd.

Wigan, sem er að ganga í gegnum afar erfiða tíma. vann þá QPR 1-0. Kieffer Moore skoraði eina mark leiksins og er liðið nú átta stigum frá fallsæti.

Félagið leitar eftir fjárfestum þessa dagana til að koma í veg fyrir að félagið fari í greiðslustöðvun.

Birmingham 1 - 3 Swansea
1-0 Lucas Jutkiewicz ('5 )
1-1 Rhian Brewster ('12 )
1-2 Ben Cabango ('45 )
1-3 Jay Fulton ('52 )

Bristol City 2 - 1 Hull City
1-0 Famara Diedhiou ('41 )
2-0 Jamie Paterson ('53 )
2-1 Jordy de Wijs ('60 )

Wigan 1 - 0 QPR
1-0 Kieffer Moore ('33 )
Brewster skoraði fyrir Swansea

Brewster skoraði fyrir Swansea

Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough14+1128
2Wolves14+827
3Birmingham14+1326
4Stoke City14+526
5Swansea14+526
6West Brom14+525
7Southampton14+1524
8West Ham14+1523
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City14-318
16Wrexham14-217
17Bolton14-717
18Cardiff City14-115
19Lincoln City14-1015
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.