08.07.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - City og Liverpool í beinni á Ölveri
Evrópuslagur í Sheffield

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það eru fjórir leikir á dagskrá í enska boltanum í dag og verða þeir allir sýndir beint á íþróttastöðvum Símans og á sportbarnum Ölveri.
Manchester City tekur á móti Newcastle á meðan Sheffield United og Wolves eigast við í Evrópubaráttunni.
Wolves er í Evrópudeildarsæti, fjórum stigum á undan Sheffield. Því verður mikið undir þegar liðin mætast í dag.
West Ham tekur þá á móti Burnley og munum við væntanlega fá að sjá Jóhann Berg Guðmundsson sprikla í leiknum þar sem hann virðist vera búinn að ná sér eftir meiðsli.
Hamrarnir eru í fallbaráttu á meðan Jói Berg og félagar geta enn laumað sér í Evrópusæti með góðum úrslitum á lokahnykknum.
Englandsmeistarar Liverpool eiga svo útileik gegn Brighton í kvöld. Brighton er níu stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar fimm umferðir eru eftir.
Leikir dagsins:
17:00 West Ham - Burnley
17:00 Sheffield Utd - Wolves
17:00 Man City - Newcastle
19:15 Brighton - Liverpool

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 5 | +8 | 15 |
| 2 | Arsenal | 5 | +4 | 12 |
| 3 | Brighton | 5 | +11 | 10 |
| 4 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 5 | Leeds | 5 | +4 | 9 |
| 6 | Liverpool | 5 | +3 | 9 |
| 7 | Everton | 5 | +3 | 9 |
| 8 | Hull City | 5 | +2 | 8 |
| 9 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 10 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 11 | Ipswich Town | 5 | -4 | 6 |
| 12 | Man Utd | 5 | 0 | 5 |
| 13 | Nott. Forest | 5 | -1 | 5 |
| 14 | Sunderland | 5 | -4 | 4 |
| 15 | Crystal Palace | 5 | -5 | 4 |
| 16 | Aston Villa | 5 | -5 | 4 |
| 17 | Bournemouth | 5 | -2 | 3 |
| 18 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 19 | Fulham | 5 | -3 | 2 |
| 20 | Tottenham | 5 | -6 | 2 |