Patrik opnar sig um sjaldgæfan taugasjúkdóm

Mynd: Kortrijk

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Kortrijk
Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson hefur verið frá keppni í næstum því tvö ár vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms sem hann ræddi í viðtali við RÚV.
Patrik lék sínar fyrstu mínútur síðustu tvær helgar með belgíska félaginu Kortrijk þegar hann kom stuttlega við sögu í æfingaleikjum með liðinu.
Hann er aðeins 25 ára gamall og hafði átt fast sæti sem varamarkvörður í landsliðshóp Íslands áður en taugasjúkdómurinn tók að hrjá hann.
Patrik hefur komið víða við á ferlinum þrátt fyrir ungan aldur og hefur meðal annars verið samningsbundinn Brentford, Silkeborg og Viking.
„Í nóvember árið 2024, þegar ég var að koma til baka eftir smá hnjask sem ég hafði lent í, byrjaði ég að dofna í fótunum en æfði í gegnum það svona nokkurn veginn í nóvember og desember. Í lok desember fóru einkennin að færa sig upp í hendur og munn. Ég fann fyrir doða og þetta var allt mjög skrítið. Upprunalega héldum við að þetta væri bara einhver klemmd taug í bakinu eða þess háttar," segir Patrik í viðtali við RÚV.
„Ég var búinn að spila einhverja æfingaleiki með þessi einkenni þar til einn daginn að vöðvarnir byrjuðu að gefa sig. Ég fór að missa mátt, sérstaklega í fótunum og verð bara mjög hægur og þungur. Svolítið eins og maður sé bara í kviksyndi. Þannig að þá var ég sendur á spítala og hitti þar taugalækni. Ég fór svo í alls kyns rannsóknir og var þá greindur þar með taugasjúkdóm, bólgusjúkdóm eða sjálfsofnæmissjúkdóm sem kallast Guillain-Barré-heilkenni. Það er mjög sjaldgæfur sjúkdómur.
„Þetta var útskýrt fyrir mér svolítið í tengslum við MS af því að það er þekktari sjúkdómur og er ekkert ósvipað því sem er í gangi í líkamanum. En það sem ég er með gerist á öðrum stað. MS hefur meiri áhrif á mænuna og heilann, þar sem líkaminn ræðst á taugarnar. En í mínu tilfelli ræðst sjúkdómurinn á úttaugarnar, eða á taugarnar sem stjórna fótum og höndum og allri tilfinningu."
Viðtalið í heild

Heimild: RÚV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð