Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 08. ágúst 2022 11:10
Elvar Geir Magnússon
Vonaðist eftir áritun frá Saint-Maximin en fékk Rolex úr
Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Allan Saint-Maximin hjá Newcastle er svo sannarlega skemmtikraftur á vellinum og hann vill líka gleðja utan vallar.

Steve Dutton, aðdáandi Newcastle, vonaðist eftir að fá eiginhandaráritun frá Saint-Maximin eftir sigur Newcastle gegn Nottingham Forest á laugardag.

Saint-Maximin fór upp að honum og gaf honum Rólex úr.

„Ég er einstaklingurinn sem fékk úrið frá ASM. Ég var algjörlega orðlaus," skrifaði Dutton á Twitter.

„Ég hélt að hann væri að koma til að gefa áritanir og myndir með krökkunum. Ég er enn nánast oðrlaus, ég get ekki þakkað honum nægilega mikið fyrir."


Athugasemdir
banner