Hversvegna það er ekki búið að sameina þessi tvö lið frá Birmingham í eitt alvöru lið skil ég ekki. Það þarf ekki að leita langt yfir skammt til að sjá ávinningin af þvílíku.
Ég veit hvað efasemdamenn munu benda á en Dalvík/Reynir er undantekning því þar var um að kenna óheppilegum fljótfærnis mistökum Guðfríðar (ritara Dalvíkur liðsins) sem sameinaði liðið óvart Reyni í Sandgerði en ekki Reyni Árskógsströnd eins og til stóð. Þetta varð til þess að ferðakostnaður vegna æfinga rauk upp úr öllu valdi og tekin var upp fjarþjálfun, sem reyndar kom sér vel því þjálfari liðsins er búsettur á Egilsstöðum.
Hvað sem því líður þá hefur Guðfríður náð nánast fullum bata og þakkar því róp-jóga námskeiði sem hún skráði sig á og hefst um miðjan janúar næstkomandi.
Facebook síða Venna Páer
Sjá einnig:
Eldri pistlar Venna Páer
Athugasemdir