Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 08. september 2019 13:44
Brynjar Ingi Erluson
Drinkwater illa farinn - Leikmaður Scunthorpe tengdur við árásina
Danny Drinkwater
Danny Drinkwater
Mynd: Getty Images
Danny Drinkwater, leikmaður Burnley á Englandi, varð fyrir fólskulegri líkamsárás í síðustu viku er hann var úti á skemmtanalífinu en ensku miðlarnir birta nýjar upplýsingar úr málinu.

Drinkwater, sem er 29 ára gamall, er á láni hjá Burnley frá Chelsea, en hann var ekki í hópnum í 3-0 tapinu gegn Liverpool og spilaði þá ekki með U23 ára liðinu gegn QPR á dögunum.

Leikmaðurinn varð fyrir fólskulegri líkamsárás en hann verður að öllum líkindum frá næstu vikurnar.

Drinkwater er sagður hafa daðrað við kærustu Kgosi Ntlhe en hann leikur með Scunthorpe United í ensku D-deildinni. Þegar Drinkwater yfirgaf staðinn þá veittust sex menn að honum og fengu þeir fyrirskipanir um að brjóta á honum lappirnar.

Mennirnir lömdu hann ítrekað í andlitið og stöppuðu ofan á ökkla Drinkwater og því verður hann frá næstu vikurnar.

Hvorki Burnley né Chelsea hafa gefið frá sér yfirlýsingu um málið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner