Fotbolti.net
08.11.19 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Ceballos ekki með í leiknum mikilvæga við Leicester

Ceballos ekki með í leiknum mikilvæga við Leicester
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski miðjumaðurinn Dani Ceballos verður ekki með Arsenal í leiknum gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Ceballos meiddist aftan í læri gegn Vitoria í Evrópudeildinni í fyrradag og verður ekki með á morgun.

Ceballos kom til Arsenal á láni frá Real Madrid í sumar en hann hefur skorað eitt mark og lagt upp tvö síðan þá.
Leikurinn á morgun er mjög mikilvægur fyrir Arsenal í baráttunni um Meistaradeildarsæti en liðið er í 5. sæti, sex stigum á eftir Leicester og Chelsea.

Arsenal gæti því minnkað bilið í þrjú stig á morgun eða endað níu stigum frá Meistaradeildarsæti ef illa fer.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.