Fotbolti.net
08.11.20 - 15:57
Ívan Guðjón Baldursson

England: Leicester hafði betur gegn Úlfunum

England: Leicester hafði betur gegn Úlfunum
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester 1 - 0 Wolves
1-0 Jamie Vardy ('15, víti)
1-0 Jamie Vardy, misnotað víti ('39)
Leicester City tók á móti Wolves í hörkuslag í ensku úrvalsdeildinni í dag og var Jamie Vardy búinn að skora eftir stundarfjórðung. Hann skoraði af vítapunktinum eftir að hendi hafði verið dæmd á Max Kilman, varnarmann Wolves. Kilman var þó afar óheppinn því hann fékk boltann í höndina af stuttu færi og kom þannig í veg fyrir fyrirgjöf.

Leicester var betra liðið í fyrri hálfleik og komst nálægt því að tvöfalda forystuna þegar Vardy steig aftur á vítapunktinn á 39. mínútu, eftir klaufalegt brot Rayan Ait-Nouri innan vítateigs. Rui Patricio gerði vel að verja frá Vardy og staðan 1-0 í leikhlé.

Síðari hálfleikurinn var fjörugur þar sem bæði lið fengu góð færi til að skora en inn vildi boltinn ekki. Kasper Schmeichel átti stórkostlega markvörslu á lokakaflanum og tókst Úlfunum ekki að jafna.

Leicester fer á topp úrvalsdeildarinnar með sigrinum, þar er liðið með 18 stig eftir 8 umferðir, einu stigi fyrir ofan Tottenham. Wolves er með 13 stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.