Fotbolti.net
08.11.26 - 19:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Cunha: Skil ekki af hverju við komum okkur í þessa stöðu

Cunha: Skil ekki af hverju við komum okkur í þessa stöðu
Canon

Mynd: EPA

Það er ljóst að Man Utd verður í fallsæti yfir landsleikjahléið eftir átta marka jafntefli gegn Aston Villa í ótrúlegum leik.

Aston Villa náð tvisvar tveggja marka forystu en Man Utd skoraði tvö mörk í uppbótatíma til að bjarga stigi.
Man Utd er í sögulega slæmri stöðu og Matheus Cunha sagði eftir leikinn að allir leikmenn þurfi að líta í eigin barm.

„Við þurfum að líta inn á við og breyta svo hlutum. Þetta er risastórt félag og það er ekki eðlilegt að vera í þessari stöðu. Við þurfum að læra af síðustu tímabilum. Ég skil ekki af hverju við komum okkur í þessa stöðu," sagði Cunha.

„Við biðjum bara stuðningsmenn að gera það sem þeir gerðu. Það er stórkostlegt því það gefur okkur orku í svona stöðu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.