08.11.26 - 13:03
Brynjar Ingi Erluson
FCK á toppinn eftir sigur á erkifjendunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Danska stórliðið FCK vann 1-0 sigur á erkifjendunum í Bröndby í dag og komst með sigrinum á topp dönsku úrvalsdeildarinnar.
Íslendingarnir Viktor Bjarki Daðason og Rúnar Alex Rúnarsson byrjuðu báðir á bekknum hjá FCK.
Snemma í síðari hálfleik skoraði William Clem sigurmarkið með stórglæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Hann skrúfaði boltann efst upp í fjærhornið og átti markvörðurinn ekki möguleika á að verja.
Viktor Bjarki kom inn af bekknum á 84. mínútu og hjálpaði FCK að halda fengnum hlut og tryggja sér stigin þrjú.
Með sigrinum komst FCK á topp deildarinnar með 32 stig, einu stigi meira en Midtjylland í öðru sæti. Bröndby er í fjórða sæti með 22 stig.