08.11.26 - 16:47
Brynjar Ingi Erluson
Iraola: Ég er pirraður yfir þessu

Andoni Iraola

Mynd: EPA

Florian Wirtz skoraði fyrsta deildarmark sitt

Mynd: EPA

Alisson var frábær

Mynd: EPA

Milos Kerkez fékk á sig vítaspyrnu undir lok leiks

Mynd: EPA

Andoni Iraola

Mynd: EPA
Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var allt annað en sáttur með vítaspyrnuna sem liðið fékk á sig í 3-1 sigrinum á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Fyrsta deildarmark Wirtz kom í sigri á Palace - Chelsea tapaði á leikvangi ljóssins
Spánverjinn var ánægður með margt í leik Liverpool og Crystal Palace og sagði það hafa skipt miklu máli að skora fyrsta markið eftir jafna baráttu í fyrri hálfleiknum.
„Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur fyrir landsleikjahléið, sérstaklega eftir vikuna sem við höfum átt. Við komum líka seint heim frá Tyrklandi á fimmtudaginn og því var sérstaklega mikilvægt að ná í þessi þrjú stig.“
„Við vorum í vandræðum varnarlega í fyrri hálfleiknum, en náðum að loka leiknum vel. Ég er þó svolítið pirraður yfir vítaspyrnunni.“
Iraola var sérstaklega ánægður með að hafa farið með forystu inn í hálfleikinn, enda hafði Palace skapað sér nokkur góð færi.
„Þetta var mjög mikilvægt augnablik í leiknum. Við hefðum átt skilið að skora úr einhverjum af þessum aukaspyrnum fyrr á tímabilinu. Alexis hefur verið að sækja á nærstöngina og við vitum að þar getum við skapað færi. Palace var hins vegar líka að fá sín færi og leikurinn var mjög jafn. Það skipti því gríðarlega miklu máli að fara með 1-0 forystu inn í hálfleikinn.“
Florian Wirtz skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Liverpool og fékk hann hrós frá Iraola.
„Ég er mjög ánægður með hann. Mér fannst hann spila vel í dag og markið var mjög laglegt. Hreyfingin hjá Alex til að skapa plássið og síðan sendingin frá Bradley voru frábærar. Þetta var mjög vel útfærð sókn og ég er ánægður fyrir hans hönd.“
Alisson átti stórleik í marki Liverpool og fékk sömuleiðis mikið hrós frá Spánverjanum.
„Hann var sérstaklega góður þegar staðan var 0-0 og átti nokkrar magnaðar vörslur. Það skipti gríðarlega miklu máli því í svona leikjum getur það ráðið úrslitum hvort liðið skorar fyrst.“
Iraola var hins vegar allt annað en sáttur við vítaspyrnuna sem Crystal Palace fékk undir lokin þegar Milos Kerkez og Dario Osorio skullu saman með höfuðin inni í teignum.
„Ég er mjög pirraður yfir þessu því það eru dæmdar vítaspyrnur í okkar vítateig, en ekkert dæmt þegar sambærileg atvik eiga sér stað hinum megin. Ég veit að við vorum 3-0 yfir og þetta gerðist á 95. mínútu, en ég er samt mjög pirraður.“
„Þeir skella saman með höfuðin og ef eitthvað er þá er það Osorio sem fer í Milos. Þeir fara einfaldlega haus í haus. Fólk getur sagt að staðan hafi verið 3-0, en fyrir mér snýst þetta um miklu meira en það. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona gerist á tímabilinu og maður fer ósjálfrátt að bera atvikin saman.“
„VAR tók sér góðan tíma í að skoða þetta. Þegar dómarinn hefur dæmt vítaspyrnu og þeir eru tvær mínútur að skoða atvikið, með tveimur eða jafnvel þremur endursýningum, þá virðist eins og þeir séu að reyna að finna ástæðu til að dæma þetta ekki. Það er ekkert auðvelt að halda hreinu í ensku úrvalsdeildinni og við vildum vinna þennan leik 3-0.“
„Þetta snýst ekki bara um þessa vítaspyrnu. Það er margt annað sem spilar inn í.“
Þrátt fyrir óánægjuna með dómgæsluna var Iraola ánægður með að fara inn í landsleikjahléið með sigur í farteskinu.
„Maður vill alltaf ljúka svona kafla með sigri. Það kemur okkur í betri stöðu, en við verðum að halda áfram að bæta okkur. Nú getum við eiginlega bara lagst á bæn fyrir landsleikjahléinu. Við höfum þegar misst þrjá leikmenn í meiðsli og það síðasta sem við þurfum er að missa fleiri. Ég vona að allt gangi vel og að allir skili sér heilir til baka í þetta sinn,“ sagði Iraola í lokin.