08.11.26 - 12:34
Brynjar Ingi Erluson
Kom með óþarfa ummæli um Musiala

Jamal Musiala

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Jamal Musiala

Mynd: EPA
Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern München, segir það óvíst hvort Jamal Musiala muni aftur nú sömu hæðum og áður.
Musiala, sem er talinn einn hæfileikaríkasti fótboltamaður Bayern München og Þýskalands, glímir við störuflogaveiki.
Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að einstaklingur missir meðvitund um umhverfi sitt í stutta stund, en Musiala hefur fengið nokkur slík flog á þessu ári.
Þetta hefur tekið sinn toll af leikmanninum, bæði andlega og líkamlega. Hann hefur aðeins leikið fjóra leiki á tímabilinu en staðið sig vel þegar hann hefur fengið tækifæri, skorað tvö mörk og lagt upp eitt.
Stuðningsmenn Bæjara eru ekki alltaf sérstaklega hrifnir þegar Hoeness, heiðursforseti félagsins, tjáir sig opinberlega, enda á hann það til að láta ýmislegt flakka sem væri betur ósagt.
Hoeness segir nú að nokkur óvissa ríki um framtíð Musiala vegna veikindanna og hvort hann nái aftur sömu hæðum og áður.
„Við erum í ákveðinni klípu með hann. Musiala er með sjúkdóm sem ekki er hægt að lækna, en hægt er að meðhöndla hann að einhverju leyti með lyfjum. Það er hins vegar óvíst hvort hann nái aftur að sýna sömu frammistöðu og áður.“
„Hann fær auðvitað enn greidd laun, en ímyndaðu þér ef Bayern færi nú að endurskoða samninginn og segði: ‚Það sem hann getur lagt af mörkum í dag er ekki lengur í samræmi við það sem samið var um,'“ sagði Hoeness.