08.11.26 - 18:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd með slökustu vörnina af liðum í stærstu deildum Evrópu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Man Utd er 4-2 undir gegn Aston Villa á Old Trafford þegar skammt er til loka leiksins.
Villa var komið með tveggja marka forystu eftir fjórar mínútur en Man Utd náði að jafna metin fyrir lok fyrri háfleiks. John McGinn skoraði síðan úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks og Leon Goretzka bætti fjórða markinu við stuttu síðar.

Man Utd hefur fengið 30 mörk á sig í öllum keppnum á tímabilinu og samkvæmt tölfræðiþjónustunni Opta hefur ekkert lið í fimm stærstu deildum Evrópu fengið fleiri mörk á sig..
Man Utd er í næst neðsta sæti deildarinnar með sjö stig eins og botnlið Crystal Palace.
Man Utd er í næst neðsta sæti deildarinnar með sjö stig eins og botnlið Crystal Palace.
30 - No side in Europe's big-five leagues have conceded more goals than Manchester United this season in all competitions (30).
— OptaJoe (@OptaJoe) November 8, 2026
Porous. https://t.co/8CEFcgaR8b