Fotbolti.net
08.11.26 - 12:47
Brynjar Ingi Erluson

Neuer ekki meira með á þessu ári

Neuer ekki meira með á þessu ári
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Manuel Neuer, markvörður Bayern München, verður frá keppni næstu tvo mánuði eftir að hafa meiðst í 2-1 sigri liðsins á Mainz í gær.
Hinn fertugi Neuer meiddist undir lok fyrri hálfleiks gegn Mainz og þurfti að yfirgefa völlinn, en Jonas Urbig kom inn á í hans stað.

Markvörðurinn reif sin að hluta í hægri fæti og verður frá keppni næstu tvo mánuði.

Það þýðir að hann hefur leikið sinn síðasta leik á þessu ári og mun ekki snúa aftur á völlinn fyrr en eftir vetrarfríið í þýsku deildinni.

Þetta gæti verið síðasta tímabil Neuer á ferlinum, en hann hefur glímt við talsverð meiðsli undanfarin ár og eru þetta enn ein slæmu tíðindin fyrir Bæjara.

Urbig er þó talinn rétti maðurinn til að taka við keflinu og mikil ánægja hefur verið með frammistöðu hans.

Hinn 23 ára gamli markvörður fær nú tækifæri til að láta ljós sitt skína næstu mánuði og festa sig í sessi sem aðalmarkvörður Bayern.

Það eru þó stór skref að feta í fótspor Neuer, sem er enda einn besti markvörður sögunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.